ByggMörk — MANNVIRKJAHÖNNUN · MERKJALÝSINGAR

Frá mörkum
til mannvirkis

ByggMörk veitir sérhæfða þjónustu í mannvirkjahönnun og merkjalýsingum — frá aðaluppdráttum, verkteikningum og uppteiknun mannvirkja til afmörkunar fasteigna og útsetningar lóða og byggingarreita.

Þjónusta

Mannvirkjahönnun, merkjalýsingar og byggingarstjórn

ByggMörk sinnir hönnun og teikningum mannvirkja, merkjalýsingum, útsetningu og ráðgjöf vegna byggingarframkvæmda.

Aðaluppdrættir, verkteikningar og uppteiknun

Mannvirkjahönnun unnin af byggingarfræðingi með reynslu af hönnun og framkvæmdum.

  • Frumhönnun og ráðgjöf
  • Aðaluppdrættir
  • Verkteikningar og deililausnir arkitekta
  • Viðbyggingar og breytingar á húsnæði
  • Uppmæling og uppteiknun mannvirkja
  • Þrívíddar- og BIM-líkön
  • Skráningartöflur

Merkjalýsingar og afmörkun fasteigna

Merkjalýsandi annast merkjalýsingar og afmörkun fasteigna ásamt frágangi gagna í samræmi við gildandi kröfur.

  • Nýjar merkjalýsingar
  • Breytingar á eignamörkum
  • Stofnun eða skipting landeigna
  • Fullnaðarskráning

Útsetning lóða og byggingarreita

Útsetning samkvæmt fyrirliggjandi og samþykktum hönnunargögnum.

  • Útsetning lóða
  • Útsetning byggingarreita

Byggingarstjórn, BIM og ráðgjöf

Aðstoð við samræmingu, útboð og framkvæmd byggingarverkefna.

  • Byggingarstjórn
  • BIM-stjórnun og samræming
  • Verklýsingar og tilboðsskrár
  • Magntaka og kostnaðaráætlanir
Ferlið

Einfalt frá fyrstu fyrirspurn.

1. Segðu frá verkefninu

Stutt lýsing, staðsetning og hvaða þjónustu þú telur þig þurfa.

2. Umfang metið

Farið er yfir gögn, forsendur og hvað þarf til að vinna verkið rétt.

3. Næstu skref

Þú færð tillögu að verkferli og verðtilboði áður en vinna hefst.

Um ByggMörk

Byggingarfræðingur með reynslu af hönnun og framkvæmdum

Að baki ByggMörk er byggingarfræðingur og húsasmíðameistari með áralanga reynslu af mannvirkjagerð og störfum á arkitektastofu.

Bakgrunnur í bæði hönnun og framkvæmdum skilar hagnýtum lausnum þar sem horft er til verkefnisins í heild – frá fyrstu hugmynd að fullbúnum hönnunargögnum.

ByggMörk sinnir jafnframt merkjalýsingum ásamt útsetningu lóða og byggingarreita og getur því tekið að sér fjölbreytt verkefni tengd fasteignum, lóðum og mannvirkjum.

Byggingarfræðingur · Húsasmíðameistari · Merkjalýsandi · Byggingarstjóri

Fyrirspurn

Ertu með verkefni í undirbúningi?

Sendu stutta lýsingu á verkefninu. Engin skuldbinding fylgir fyrirspurn.